Ögmundur biður fatlaða afsökunar

Ögmundur Jónasson
Ögmundur Jónasson Ómar Óskarsson

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra biður fatlaða einstaklinga sem telja á sér brotið afsökunar á því að lögum hafi ekki þegar verið breytt þannig að þeir geti valið sér aðstoðarmenn til að fara með í kjörklefa. Hann segir ekki unnt að verða við kröfum þeirra fyrr en að undangenginni lagabreytingu.

Í yfirlýsingu frá Ögmundi er á það bent að fyrir kosningar til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010 hafi komið fram krafa af hálfu Blindrafélagsins um að einstaklingar sem þyrftu aðstoðar við í kjörklefanum gætu fengið aðstoðarmann að eigin vali sér til hjálpar í stað þess að fá aðstoð í einrúmi frá fulltrúa kjörstjórnar sem bundinn væri þagnarheiti eins og kveðið er á um í lögum.

Niðurstaða Ögmundar varð sú fyrir kosningarnar til stjórnlagaþings að ráðuneytið, með skírskotun til 29. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sendi frá sér tilkynningu tíu dögum fyrir kjördag til kjörstjóra vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar um að blindir kjósendur mættu koma með aðstoðarmann að sínu vali til þess að fylla út kjörseðilinn. Jafnframt að blindum, sjónskertum og þeim sem ekki gætu fyllt út kjörseðil með eigin hendi væri heimilt að hafa með sér aðstoðarmann að eigin vali sér til aðstoðar í kjördeild.

„Rökin fyrir þessum tilkynningum ráðuneytisins voru þau að um gjörólíka kosningu væri að ræða miðað við hefðbundnar kosningar hér á landi, t.d. hvað varðar fyrirkomulag, mikinn fjölda frambjóðenda og flókins kjörseðils. Þessi niðurstaða þótti ásættanleg af hálfu flestra hlutaðeigenda og leit ég svo á að þessi tilhögun gæti haldist áfram. Þetta skýrir andvaraleysi mitt gagnvart nauðsyn lagabreytinga strax til að nálgast þau markmið sem Blindrafélagið og fleiri vildu ná og ég fyrir mitt leyti er sammála,“ segir Ögmundur.

Ógilding Hæstaréttar hafði áhrif

Eins og kunnugt er ógilti Hæstiréttur kosningarnar til stjórnlagaþings með ákvörðun sinni 25. janúar 2011 en þar kom skýrt fram að það væri ekki á færi stjórnvalda að víkja frá skýrum fyrirmælum laga um framkvæmd kosninga. Í lögum um framboð og kjör forseta Íslands er kveðið á um að ákvæði laga um kosningar til Alþingis gildi við forsetakosningar. Í síðarnefndu lögunum er kveðið á um hvernig veita megi fötluðum aðstoð í forsetakosningum.

„Ljóst er að það er ekki á færi ráðherra að víkja þeim lagaákvæðum til hliðar. Slíkt gæti valdið ógildingu kosninganna. Af þessum sökum er því miður ekki unnt að verða við kröfum um að fatlað fólk sem þarf aðstoðar við í kjörklefa fái þá aðstoð á annan hátt en skilgreint er í lögum.

Í haust mun ég þegar í þingbyrjun leggja fram frumvarp þessu til breytingar og hafa til hliðsjónar breytingar sem Danir og Svíar hafa gert á sínum kosningalögum til samræmis við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en þeir einir Norðurlandaþjóðanna hafa fullgilt samninginn,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert