Minnsta úrkoma í Stykkishólmi frá 1857

Úrkoman í Stykkishólmi í júní mældist aðeins 0,6 mm.
Úrkoman í Stykkishólmi í júní mældist aðeins 0,6 mm. mbl.is

Mjög þurrt var á landinu í júní og var úrkoma alls staðar minni en í meðalári. Í Reykjavík var úrkoman 28% af meðalútkomu og í Stykkishólmi hefur úrkoma í júní aldrei mælst eins lítil, en þar eru til samfelldar mælingar á veðri frá árinu 1857.

Þurrkarnir voru óvenjulegastir um landið vestanvert, allt frá Reykjanesskaga í suðri norður og austur um til Skagafjarðar. Úrkoman í Stykkishólmi í júní mældist aðeins 0,6 mm.

Úrkoma mældist 13,8 mm í Reykjavík og er það aðeins 28 prósent meðalúrkomu. Ámóta þurrt var í Reykjavík í júní í fyrra (2011) og sömuleiðis mældist úrkoma litlu minni 2008 og 1980. Þurrasti júní í Reykjavík var 1971 en þá mældist úrkoma aðeins 2,1 mm.

Á Akureyri mældist úrkoman í júní 9,9 mm og er það um 35 prósent meðalúrkomu. Á Höfn í Hornafirði mældist úrkoman aðeins 12,6 mm. Þetta er minnsta júníúrkoma þar um slóðir frá 1991.

Hiti yfir meðallagi í Reykjavík

Meðalhiti í Reykjavík mældist 10,7 stig, 1,7 stigi ofan meðallags og er þetta áttundi hlýjasti júnímánuður sem vitað er um i Reykjavík (tillit er tekið til flutninga stöðvarinnar um bæinn). Júní 2010 var þó hlýrri heldur en júní nú. Í Stykkishólmi var meðalhitinn 9,7 stig og er það 1,6 stigum yfir meðallagi. Mun kaldara var um landið austanvert. Á Akureyri var meðalhitinn 8,9 stig, eða 0,3 stigum undir meðallagi, og á Egilsstöðum var hiti 1,3 stigum undir meðallagi. Júní í fyrra (2011) var þó talsvert kaldari norðaustanlands heldur en sá nýliðni. Meðalhita á fleiri stöðvum má sjá í töflu. Þar má einnig sjá hvar mánuðurinn raðast í meðalhitaröð, frá þeim hlýjasta talið.

Meðalhiti mánaðarins var hæstur á Þyrli í Hvalfirði, 11,0 stig og 10,9 stig á Hafnarmelum. Lægstur var meðalhitinn á Gagnheiði, 1,1 stig. Í byggð og á láglendi var meðalhitinn lægstur í Seley, 4,9 stig og 5,2 í Papey.

Hæsti hiti mánaðarins mældist á Hellu á Rangárvöllum og í Árnesi þann 2., 22,8 stig. Hæsti hiti á mannaðri stöð mældist í Stafholtsey þann 1., 21,2 stig. Hiti komst í 20 stig aðeins sjö daga í mánuðinum.

Sólríkur mánuður

Óvenjusólríkt var bæði í Reykjavík og á Akureyri. Í Reykjavík mældust sólskinsstundirnar 320,6 og hafa aðeins einu sinni orðið fleiri í júní. Það var 1928 þegar þær mældust 338,3. Sól skein nú 159 stundir umfram meðallag í júní. Samanlagt eru sólskinsstundir í maí og júní í Reykjavík nú 617 stundir og hafa aldrei mælst svo margar í þessum tveimur mánuðum samanlagt.

Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 258,4 og er það 82 stundum umfram meðallag. Sólskinsstundirnar voru ámóta margar á Akureyri í júní 2010.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka