Dánartíðni í umferðarslysum á Íslandi er frekar lág miðað við Evrópu. Í athugun sem Umferðarstofa hefur gert á fjölda þeirra sem látast í umferðinni hér á landi borið saman við 28 önnur Evrópulönd kemur í ljós að Ísland raðar sér í efstu sæti hvað lága dánartíðni varðar í umferðinni.
Þegar bornar eru saman tölur um meðaltalsfjölda látinna í umferðarslysum í 29 Evrópulöndum, öllum löndum Evrópusambandsins ásamt Íslandi og Noregi, kemur í ljós að Ísland er fimmta landið í röð þeirra sem eru með lægstu dánartíðni í umferðinni samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu
Hér á landi létust árlega að jafnaði 40,6 einstaklingar í umferðinni á hverja milljón íbúa á tímabilinu. Holland sýnir bestan árangur með 37,6 einstaklinga en á eftir þeim kemur Bretland með 38,8, Svíþjóð með 39, Malta með 39,8 og síðan Ísland með 40,6 eins og fyrr sagði. Í Litháen létust 131,8 einstaklingar á hverja milljón íbúa en þar er fjöldi fórnarlamba mestur. Athugað var meðaltal fimm ára tímabils, 2007-2011.
Þegar þessar tölur eru skoðaðar nánar kemur í ljós mikill árangur á undanförnum 5 árum í fækkun banaslysa í flestum Evrópulöndum. Ef skoðuð eru 5 ár á undan fyrrnefndum samanburðartíma kemur í ljós að á tímabilinu 2002 til 2006 létust að meðaltali 84,4 einstaklingar á hverja milljón íbúa hér á landi eða rúmlega helmingi fleiri en fimm ára tímabil þar á eftir, frá 2007 til 2011.
Þótt sjá megi lækkun dánartíðni í flestum öðrum Evrópulöndum þá er árangurinn mun meiri hér á landi en hjá flestum öðrum Evrópulöndum þar sem Ísland hefur færst úr níunda sæti upp í það fimmta eins og fyrr sagði.
Innan Evrópusambandsins lést að jafnaði 71,4 á hverja milljón íbúa. Það er því ljóst að árangurinn í umferðaröryggismálum er umtalsverður hvað banaslys varðar hér á landi. Þær Evrópuþjóðir þar sem fæstir látast í umferðinni eru öllu jöfnu með lægstu tíðni banaslysa á heimsvísu og því má leiða getum að því að dánartíðnin hér á landi sé með því allra lægsta sem þekkist.
Þrátt fyrir þennan árangur eru dauðsföll hér á landi af völdum umferðarslysa ein algengasta dánarorsök ungs fólks á aldrinum 16 - 24 ára segir í tilkynningu Umferðarstofu.