Rúta með 50 manns innanborðs fór út af veginum við Másvatn á leið sinni milli Lauga og Mývatns. Í rútunni eru eldri borgarar, allir eru ómeiddir en einhverjum mun þó hafa brugðið.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík urðu ekki slys á fólki og því þurfti ekki að kalla sjúkrabíla á staðinn. Hins vegar var björgunarsveit Landsbjargar kölluð úf frá Mývatni til aðstoðar lögreglu.
Þar sem rútan hafnaði alveg utan vegar urðu ekki tafir á umferð.