Sinueldur við Laugabólsvatn

Sinueldar loga í Laugardal á Vestfjörðum. Myndin er úr safni …
Sinueldar loga í Laugardal á Vestfjörðum. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. mbl.is/Júlíus

Sinueldar loga í Laugardal á Vestfjörðum, n.t.t. við Laugabólsvatn, innst í Ísafjarðardjúpi. Tilkynning barst kl. 15:48 og er slökkvilið Súðavíkur á vettvangi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vestfjörðum er eldurinn talsverður.

Engan hefur sakað og er slökkvistarf í fullum gangi. Samkvæmt upplýsingum lögreglu eru hús ekki sögð í hættu. Slökkvilið Súðavíkur hefur ekki óskað eftir liðsauka vegna eldsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert