Guðrún Sóley Gestsdóttir hefur verið ráðin nýr ritstjóri Stúdentablaðsins fyrir skólaárið 2012-2013. Mun hún taka við störfum af Sólrúnu Halldóru Þrastardóttur. Guðrún Sóley er bókmenntafræðinemi og hefur unnið sem blaðamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá árinu 2011. Hún er fyrrverandi fulltrúi stúdenta í Háskólaráði, sat í Stúdentaráði og hefur sinnt ýmsum störfum í nefndum á vegum ráðsins. Hún ritstýrði einnig Akademíunni 2011, en það er upplýsingarit Stúdentaráðs ásamt því að vera réttindaskrá stúdenta.
„Ætlunin er að búa til efnismikið, skemmtilegt og málefnalegt blað sem kitlar áhuga flestra stúdenta,“ segir Guðrún Sóley. „Í samstarfi við öfluga ritnefnd mun ég leggja áherslu á að nemendur skólans fái ríkulega umfjöllun og að þeim verði gert kleift að nýta sér blaðið sem tjáningarvettvang. Þessu verður svo blandað við menningartengdar fréttir, svipmyndir úr lífi stúdenta, skoðanaskipti, ríkt myndmál og afþreyingu. Útgáfa Stúdentablaðsins á netinu verður jafnframt efld og óskandi að úr verði kokteill sem lesendur kunna að meta. Hér er enda um að ræða einn elsta prentmiðil landsins og mikilvægt að halda merkjum hans vel á lofti.“