Guðmundur Páll Ólafsson, náttúrufræðingur og rithöfundur, lést í gær á líknardeild Landspítalans, 71 árs að aldri.
Guðmundur var fæddur 2. júní árið 1941 á Húsavík, stundaði háskólanám og ýmis störf í Bandaríkjunum 1960-1966, lærði meðal annars köfun, myndlist og líffræði og lauk BSc-gráðu frá Ohio State University. 1966-68 var hann skólastjóri og kennari á Blönduósi þar sem hann setti á fót fyrstu tungumálastofu landsins en 1968-70 var hann líffræðikennari við MA.
Guðmundur lærði ljósmyndun við Stockholms Fotografiska Skola og stundaði doktorsnám í sjávarlíffræði við Stokkhólmsháskóla á árunum 1971-74 en viðfangsefnið var dýralíf í þangfjörum við Flatey á Breiðafirði. Árin 1970-71 samdi Guðmundur Páll námsefnið Líf og umhverfi, ætlað 12 ára nemendum, sem unnið var á vegum menntamálaráðuneytis.
Á árunum 1972-84 bjó hann og starfaði í Flatey á Breiðafirði og á þessum árum samdi hann einnig námsefni. Frá haustinu 1985 starfaði hann m.a. sem rithöfundur, náttúruljósmyndari og virkur náttúruverndari, greinahöfundur og fyrirlesari. Guðmundur Páll hlaut margvíslegar viðurkenningar fyrir verk sín.
Eftirlifandi eiginkona Guðmundar er Ingunn K. Jakobsdóttir kennari. Dætur Guðmundar eru Blær, Ingibjörg Snædal og Halla Brynhildur.