Viðræður skiluðu ekki árangri

Makríll
Makríll Wikipedia

Viðræður um kvótaskiptingu makríls í London í dag leiddu ekki niðurstöðu en enn ber of mikið á milli viðræðuaðila. Þetta kemur fram á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Í dag fóru fram í London viðræður milli Íslands, Færeyja, Noregs og Evrópusambandsins um makríl. Fundurinn var að hluta sameiginlegur með aðild allra fjögurra en að hluta í formi þríhliða viðræðna Íslands, Noregs og Evrópusambandsins og hins vegar Færeyja, Noregs og Evrópusambandsins.

Í lok fundarins komu viðræðuaðilar sér saman um eftirfarandi yfirlýsingu:

1)   Viðræður um kvótaskiptingu leiddu ekki til niðurstöðu.Of mikið ber enn á milli viðræðuaðila.

2)   Aðilar eru sammála um að samningsumleitanir haldi áfram á reglubundnum haustfundi strandríkjanna.

3)   Viðræðuaðilarnir eru sammála um mikilvægi þess að virða vísindalega ráðgjöf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert