Steinunn Arnþrúður valin í Hjallasókn

Hjallakirkja í Kópavogi.
Hjallakirkja í Kópavogi. mbl.is/Jim Smart

Valnefnd Hjallaprestakalls í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra leggur til við biskup Íslands að sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir verði ráðin prestur í Hjallaprestakalli. Embættið veitist frá 1. september 2012.

Frestur til að sækja um rann út þann 8. ágúst síðastliðinn. Átta sóttu um embættið en einn dró umsókn sína til baka.

Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, hefur skipað Steinunni Arnþrúði í embættið eins og  valnefnd hefur náð samstöðu um, enda telur hún niðurstöðu valnefndar reista á lögmætum sjónarmiðum.

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert