Lögreglunni í Tulsa í Oklahoma í Bandaríkjunum hafa borist nokkrar ábendingar um Jermaine Jackson sem grunaður er um að hafa myrt Kristján Hinrik Þórsson og John White sl. laugardag.
Lögreglan gaf út tilkynningu í gær um að hún væri að leita að Jackson. Hann er 19 ára gamall. Hann var staddur við verslunina QuikTrip aðfaranótt laugardags þegar þá Kristján og White bar þar að. Orðaskipti upphófust á milli Jacksons og White sem enduðu með því að sá fyrrnefndi dró upp byssu og skaut inn í bílinn.
Lögreglan telur að nokkrir félagar Jacksons hafi aðstoðað hann við að fela sig frá því að morðin áttu sér stað. Leit að honum heldur áfram.