„Það er ekki vitað í augnablikinu hvað gerðist. Þetta var mjög kröftug sprenging, hlutir úr íbúðinni þeyttust tugi metra. Fyrst héldu nágrannar að þetta væri jarðskjálfti,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Sprenging varð í íbúð í fjölbýlishúsi við Ofanleiti í Reykjavík um klukkan 11 í morgun. Karlmaður, sem bjó í íbúðinni, brenndist alvarlega og er nú á slysadeild Landspítalans.
„Það er ýmislegt sem getur valdið svona kröftugri sprengingu í heimahúsi og margt sem hefur áhrif, t.d. hversu þétt íbúðin er, hvort súrefni kemst að. Það er möguleiki á svo mörgu.“
Að sögn Jóns Viðars hefur ekki verið hægt að rannsaka eldsupptök, því ekki er á færi annarra en reykkafara að fara inn í íbúðina vegna mengunar. „Þegar við komum á staðinn stóðu eldsúlurnar út úr gluggunum báðum megin í íbúðinni. Það er mesta mildi að rúðurnar í íbúðinni fyrir ofan skyldu ekki brotna.“
Eldurinn breiddist ekki út í nærliggjandi íbúðir eða á stigagang. Óskað hefur verið eftir því við íbúa í stigaganginum að þeir fari ekki inn í íbúðir sínar á næstunni og hefur Rauði krossinn verið þeim innan handar um dvalarstað.