Vettvangurinn afhentur lögreglunni

Frá Ofanleiti í morgun.
Frá Ofanleiti í morgun. mbl.is/ Egill Sigurðsson

Slökkvistarfi er lokið í Ofanleiti og var rannsóknardeild lögreglunnar afhentur vettvangurinn rétt fyrir klukkan eitt í dag. Síðustu slökkviliðsmennirnir fóru af vettvangi rétt eftir hálftvö.

Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er nú starf að færast í eðlilegt horf, en allt tiltækt slökkvilið var kallað á vettvang. Ekki þurfti að sinna nema örfáum sjúkraflutningum á meðan og var rólegt í kerfinu að öðru leyti.

Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er enn ekkert vitað um orsök sprengingarinnar og er málið í rannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert