Tillaga um útsvarslækkun í Reykjavík felld

Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Hanna Birna Kristjánsdóttir. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Meirihluti Besta flokks og Samfylkingar felldi á fundi borgarstjórnar í dag tillögu Sjálfstæðisflokksins um að útsvar verði lækkað í Reykjavík, þannig að hækkanir núverandi meirihluta verði dregnar til baka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa ítrekað lagt fram tillögur um að hækka ekki skatta á almenning, varað við áhrifum þess og bent á nauðsyn þess að fara aðrar leiðir.  Þetta hefur verið gert við afgreiðslu fjárhagsáætlana, ársreikninga og í fjölmörgum umræðum um málið í borgarráði og borgarstjórn.

 „Rökin fyrir því að halda sköttum á almenning lágum eru augljós. Reykjavík er stærsta sveitarfélagið og hefur burði til þess að veita góða þjónustu án þessa að innheimta hámarksútsvar; þessi leið var farin með góðum árangri á erfiðum tímum strax efir hrun bankanna og aldrei hefur verið mikilvægara en einmitt nú að standa með almenningi með þeim hætti," sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, í umræðum í borgarstjórn í dag, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

 Niðurstöður ársreiknings 2011 og hálfsársuppgjörs 2012 benda enn frekar til að hægt sé að ganga til þessa verks, en þar kemur fram að skatttekjur borgarinnar eru verulega umfram fjárþörf.  Þannig eru útsvarstekjur umfram áætlun fyrir árið 2011 2,2 milljarðar og í hálfsársuppgjöri fyrir janúar – júní 2012 kemur fram að skatttekjur eru 670 milljónir umfram áætlun.  Því má segja að undanfarin ár hafi borgarstjórn tekið um 3 milljarða meira af ráðstöfunartekjum heimilanna í Reykjavík en þörf er á. 

 Því lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins til að útsvar í Reykjavík verði lækkað, undirbúningur að þeirri breytingu hefjist strax og breytingin taki gildi um áramót. Sú tillaga var eins og áður segir felld af meirihluta Besta flokksins og Samfylkingarinnar,“ segir í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert