Dýrasti hamborgari Íslandssögunnar

Tjónið er metið á um tuttugu milljónir króna.
Tjónið er metið á um tuttugu milljónir króna. Af vef Bæjarins besta

„Þetta er ábyggilega dýrasti hamborgari Íslandssögunnar og því vona ég svo sannarlega að hann hafi verið góður,“ segir Ómar Már Jónsson sveitarstjóri í Súðavík, en tjónið sem hlaust af sinu- og skógareldum í Laugardal í Ísafjarðardjúpi síðla sumars er metið á yfir 20 milljónir króna.

Talið er líklegt að eldurinn hafi kviknað út frá einnota grilli og að öllum líkindum mun Súðavíkurhreppur þurfa að greiða umræddan kostnað að fullu, en ekki njóta fjárhagsaðstoðar frá innanríkisráðuneytinu eins og vonir stóðu til, samkvæmt frétt á vef Bæjarins besta.

Ómar Már hafði samband innanríkisráðuneytið í síðasta mánuði og sóttist eftir því að ráðuneytið myndi koma til móts við sveitarfélagið vegna þess kostnaðar sem fylgdi slökkvistarfinu í Laugardal. Ómar benti í því samhengi á 11. grein Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, en þar kemur fram að sjóðnum sé heimilt að greiða framlög til verkefna á vegum sveitarfélaga og aðstoða sveitarfélög sem hafa orðið fyrir verulega íþyngjandi eða ófyrirséðum útgjöldum vegna lögákveðinna verkefna eða af öðrum ástæðum.

Viðbrögðin sem sveitarfélagið fékk frá innanríkisráðuneytinu voru þau að ekki verði úthlutað úr sjóðnum í tilfelli líkt og því sem hér um ræðir. Greinin hafi sérstaklega verið hugsuð fyrir mál sem snúa að barnaverndarlögum. Ómar Már segir málið grafalvarlegt. „Þetta er stór hluti af okkar heildartekjum,“ segir Ómar í samtali við BB.

Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar nú upptök eldisins og hverjir séu mögulegir sökudólgar í málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert