Steyttu á skeri í Þingvallavatni

Björgunarsveitirnar Tintron, Grafningi og Ingunn frá Laugarvatni voru kallaðar út rétt eftir klukkan 10:00 í kvöld vegna manns sem sat fastur á skeri undan Skálabrekku vestan megin í Þingvallavatni.

Maðurinn hafði verið á siglingu á harðbotna mótorbáti á vatninu þegar hann steytti á skerinu, nokkuð harkalega að því er virðist þar sem báturinn var nánast á þurru, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu.

Kona sem var með manninum í bátnum synti í land, um 70-100 m leið, til að hringja eftir hjálp þar sem hvorugt þeirra var með síma. Björgunarsveitamenn voru komnir að manninum á skerinu klukkan 23:10 og fluttu þeir hann í land.

Báturinn var skilinn eftir enda heftir myrkur athafnir á vatninu sem stendur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert