Fjórir af þeim 16 einstaklingum sem lögregla handtók í umfangsmiklum aðgerðum gegn mótorhjólasamtökunum Outlaws í gærkvöldi voru nú um 21 leytið í kvöld leiddir fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness þar sem krafist var gæsluvarðhalds yfir þeim.
Einn fjórmenninganna er Víðir Þorgeirsson, foringi Outlaws. Auk hans var krafist gæsluvarðhalds yfir tveimur körlum og einni konu. Þrjú þeirra voru úrskurðuð í gæsluvarðhald í eina viku eða til 11. október, á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Dómari tók sér hins vegar frest til morguns til að taka afstöðu til gæsluvarðhaldskröfu yfir þeim fjórða, einum karlanna.
Yfirheyrslur stóðu yfir í allan dag, en níu öðrum sem handteknir voru í aðgerðum lögreglu í gær og vistaðir í fangageymslum í þágu rannsóknarinnar hefur nú verið sleppt úr haldi.
Alls voru 16 menn handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglunnar í gær gegn vélhjólagenginu Outlaws. Aðgerðirnar hófust klukkan 20 og stóðu fram yfir miðnætti. Lagt var hald á nokkra tugi gramma af sterkum fíkniefnum, stera, bruggtæki og bæði landa og gambra, að sögn lögreglu.