Krefjast stöðvunar framkvæmda við Mývatn

Landmótunarframkvæmdir eru hafnar í Bjarnarflagi.
Landmótunarframkvæmdir eru hafnar í Bjarnarflagi. mbl.is

Stjórn Landverndar hefur sent stjórn Landsvirkjunar bréf þar sem farið er fram á að Landsvirkjun stöðvi nú þegar framkvæmdir fyrirtækisins við fyrirhugaða 45-90 MW Bjarnarflagsvirkjun þar til rammaáætlun hefur verið samþykkt á Alþingi. 

Vilja að nýtt mat verði unnið

Mbl.is sagði frá því í gær að Landsvirkjun hefur sett af stað framkvæmdir í Bjarnarflagi. Um er að ræða undirbúningsvinnu fyrir landmótun þar sem hugsanlegt stöðvarhús mun rísa, ef ákveðið verður að byggja gufuaflsvirkjun á svæðinu. Landvernd telur að með landmótunarframkvæmdum í Bjarnarflagi sé Landsvirkjun að „laumast fram hjá“ nýju umhverfismati. Tæp 10 ár eru síðan umhverfismat var gert á svæðinu.

Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar, benti á í samtali við mbl.is að á undanförnum tíu árum hefðu orkufyrirtækin öðlast mikilvæga reynslu af rekstri jarðvarmavirkjana og umhverfisáhrifum þeirra sem gæti haft áhrif á niðurstöðu nýs umhverfismats. Landvernd fer því fram það að Landsvirkjun vinni nýtt mat á umverfisáhrifum virkjunarinnar.

Vísa í einstakt lífríki Mývatns

Í þessu sambandi bendir stjórn Landverndar sérstaklega á spurningar sem hafa vaknað um mengun frá fyrirhugaðri virkjun, bæði affallsvatns og brennisteinsvetnis. Einnig getur möguleg kæling á grunnvatnsstreymi í kjölfar orkuvinnslu minnkað kísilstreymi til Mývatns, sem er ein undirstaða fjölbreytilegs lífríkis vatnsins.

„Einstakt lífríki Mývatns skapar því sérstöðu á heimsvísu,“ segir í yfirlýsingu frá Landvernd sem vísar í nýsamþykkta verndaráætlun fyrir Mývatn og Laxá. Þar segir að það sé skylda núlifandi kynslóðar að varðveita sérstöðu svæðisins „ og þar með að tryggja komandi kynslóðum sama aðgengi og svipaða upplifun og við getum notið nú í dag“. Í bréfi stjórnar Landverndar eru stjórnarmenn Landsvirkjunar beðnir um að hafa það í huga við afgreiðslu erindisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert