Takast á um innflutning dýra

Krafa Bændasamtakanna er að ekki verði heimilt að flytja inn …
Krafa Bændasamtakanna er að ekki verði heimilt að flytja inn lifandi dýr. mbl.is/Golli

Ekki hefur enn tekist samstaða innan utanríkismálanefndar um að setja fram körfu gagnvart Evrópusambandinu um að ekki verði heimilað að flytja inn lifandi dýr til landsins. Bændur óttast líka að ekki verði gerð krafa um tollvernd í aðildarviðræðunum við ESB.

Ekki lengur samkvæmisleikur Samfylkingarinnar

Þessar vikur og mánuði eru stjórnvöld að móta afstöðu um hvernig þau ætla að halda á landbúnaðarmálum gagnvart ESB. Forystumenn bænda finna vel fyrir því að það styttist í að menn þurfi að taka alvarlegar ákvarðanir. „Þetta er ekki lengur einhver samkvæmisleikur Samfylkingarinnar heldur standa menn frammi fyrir alvörunni,“ sagði Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, á haustfundi Landssambands kúabænda á Hvanneyri.

Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda, situr í landbúnaðarhópnum sem vinnur að því að móta samningsafstöðu Íslands. Hann sagði að framan af hefði þetta verið rólegt starf. „Nú hefur þetta færst úr því að vera þrír fundir á ári í það að vera þrír fundir á viku“.

Takast á um matvælaöryggi í utanríkismálanefnd

Eiginlegar samningaviðræður um landbúnaðarmál við ESB eru ekki hafnar, en ESB sendi íslenskum stjórnvöldum bréf á síðasta ári þar sem kom fram að þeir teldu Ísland ekki tilbúið til viðræðna um landbúnaðarmál. Gerð var krafa um að Ísland setti fram tímasetta áætlun um hvernig stjórnvöld ætluðu að standa við skuldbindingarnar sem aðildarsamningur fæli í sér. Þeirri áætlun var skilað í sumar og í haust samþykkti ESB áætlunina.

Áætlunin felur í sér að Ísland þarf ekki að gera breytingar á stofnunum eða löggjöf áður en samningaviðræðum við ESB er lokið, en stjórnvöld verða hins vegar að segja hvernig þau ætla að standa að breytingum sem samningurinn felur í sér og hvenær þær taka gildi.

Nú er komið að næsta skrefi sem er að móta samningsafstöðu Íslands. Kaflarnir sem snúa að landbúnaðinum eru 11. og 12. kafli viðræðnanna. 11. kaflinn fjallar um landbúnað og 12. kaflinn fjallar um matvælaöryggi og fleira.

Haraldur segir að drög að samningsafstöðu um matvælaöryggi hafi verið lögð fyrir utanríkismálanefnd í júní og hefðu þau ekki enn verið afgreidd. Hann sagði að upphafleg drög hefðu verið „handónýtt plagg“, en það hefði lagast mikið síðan. Enn vantaði þó inn í skjalið grundvallaratriði um að ekki mætti flytja lifandi dýr til Íslands. Haraldur sagði að þarna væri varnarlína sem ekki mætti stíga yfir. Ef íslensk stjórnvöld treystu sér ekki til þess að gera þessa kröfu gagnvart ESB, hvers væri þá að vænta í öðrum málum, t.d. varðandi sjávarútveg.

Haraldur sagði að formaður samninganefndar Íslands hefði sagt að krafan varðandi bann við innflutningi dýra væri skrifuð inn í kröfugerð Íslands með öðrum hætti, en greinilegt var á Haraldi að hann treysti því ekki. Hann sagðist fagna því að stjórnmálamenn í utanríkismálanefnd hefðu ekki gefið eftir í þessu máli. Þegar væri nú búið „að tosa þetta út fyrir varnarlínur Bændasamtakanna“ eins og þær voru kynntar í fyrravetur.

Ekki gerð krafa um tollvernd?

Baldur Helgi sagðist telja að vinna við mótun samningsafstöðu Íslands í 11. kaflanum væri „fálmkennd í meira lagi“.  Formaður samningshópsins hefði talað um að leggja upp með opna samningsafstöðu. Ekki væri gert ráð fyrir að gerð yrði krafa um tollvernd fyrir íslenskan landbúnað sem er meginkrafa Bændasamtakanna í aðildarviðræðunum.

Haraldur gagnrýndi Steingrím J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra, á fundinum. Hann hefði komið sér hjá því að svara því hvort gerð yrði krafa um tollvernd í viðræðunum. Forveri hans í landbúnaðarráðuneytinu, Jón Bjarnason, hefði hins vegar lýst yfir afdráttarlausum stuðningi við kröfu Bændasamtakanna um tollvernd.

Bændur sem mbl.is ræddi við á fundinum sögðu að vandamálið væri að Evrópusambandið væri tollabandalag og það væri ekki gert ráð fyrir að einstök aðildarríki væru með aðra stefnu í tollamálum en bandalagið sjálft. Þess vegna hefði aldrei átt að leggja af stað í þessa ferð.

Það eru mörg mál sem tekist er á um þegar verið er að móta samningsafstöðu Íslands. Eitt  mikilvægt atriði er að ESB hefur tekið ákvörðun um að afnema kvótakerfi í mjólkurframleiðslu, en hér á landi er kvótakerfið grundvallaratriði í skipulagi framleiðslunnar. Annað atriði er hversu mikla áherslu íslensk stjórnvöld eigi að leggja á að styrkja atvinnugreinar eins og svínarækt og kjúklingaframleiðslu.

Tollverndin er að veikjast

Þó að bændur hafi mikla áhyggjur af viðræðunum við Evrópusambandið hafa þeir ekki síður áhyggjur af því að tollverndin sé að veikjast, óháð því hvort Ísland gengur inn í ESB eða ekki. Ástæðan er sú að tollar á innfluttar landbúnaðarvörur miðast við tilteknar krónutölur sem ekkert hafa breyst í mörg ár. Verðbólga liðinna ára hefur því rýrt þessar tölur. Ef gengi krónunnar styrkist verður innflutningur á landbúnaðarvörum hagkvæmari og reikna má með að áhugi á honum glæðist.

Haraldur segir að það sé orðið þannig að það geti t.d. borgað sig fyrir pitsuframleiðanda að flytja inn ost ofan á pitsurnar á fullum tollum. Það sé ekki langt í að þessi innflutningur á unnum mjólkurvörum verði ráðandi í verðlagningu á mjólkurvörum. Þar með skipti ákvarðanir verðlagsnefnda engu máli lengur. Um 60% af markaði fyrir mjólkurvörur eru ostar, smjör og aðrar unnar vörur sem hafa langt geymsluþol.

Náðu ekki fram hækkun á tollvernd

Haraldur sagði að Norðmenn væru með sama kerfi í tollvernd og á Íslandi. Tollverndin hefði verið að veikjast þar eins og á Íslandi vegna breytinga á verðlagi og gengi. Norsk stjórnvöld hefðu tekið ákvörðun um að hækka krónutölur í tollalögum. Í tengslum við gerð búvörusamninga í haust hefði verið þrýst á stjórnvöld að hækka krónutölurnar og þar með tollverndina. Hann sagði að Steingrímur J. hefði stutt þetta en Samfylkingin hefði ekki mátt heyra á það minnst.

Búvörusamningarnir voru framlengdir og gilda nú til ársloka 2016. Haraldur sagði að stjórnvöld hefðu krafist þess að í samningana yrði sett ákvæði um að ef Ísland gengi í ESB myndu þeir falla úr gildi. Á það hefðu bændur orðið að fallast.

Um 60% af markaði fyrir mjólkurvörur eru ostar, smjör og …
Um 60% af markaði fyrir mjólkurvörur eru ostar, smjör og aðrar unnar vörur sem hafa langt geymsluþol. mbl.is/Hjörtur
Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna.
Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna. mbl.is/Ómar Óskarsson
Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænd.
Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænd.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka