Um 900 Íslendingar eru illa haldnir af áfengissýki og 5000 - 7000 börn búa við svo mikið álag vegna áfengis- og vímuefnaneyslu á heimilum sínum, að heilsa þeirra er í hættu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá SÁÁ, en nú hafa yfir 15 þúsund Íslendingar skrifað undir kröfu um að 10 prósent af áfengisgjaldinu verði varið til að nýrra úrræða fyrir þolendur áfengis- og vímuefnavandans.
SÁÁ stendur fyrir undirskrifasöfnun þessa efnis og að sögn Gunnars Smára Egilssonar, formanns samtakanna, hefur verið stígandi í henni.
„Söfnunin hefur staðið í nítján daga en á síðustu sex dögum hafa yfir fimm þúsund undirskriftir bæst við. Við finnum alls staðar fyrir miklum stuðningi og velvilja og vitum því að það eiga margar undirskriftir eftir að bætast við á næstu dögum,” er haft eftir Gunnari Smára í tilkynningu frá SÁÁ.
„Krafan byggir á mikilli þörf fyrir sérsniðin úrræði fyrir veikustu áfengis- og vímuefnasjúklingana, sem sumir eru á götunni en aðrir í úrræðum sem engan veginn henta stöðu þeirra. Að sama skapi er brýn þörf á að veita fólki sem kemur úr áfengis- og vímuefnameðferð aðstoð til að komast til mennta, vinnu og virkni í samfélaginu,“ segir í yfirlýsingunni. Þá sé ekki síst þörf fyrir að viðurkenna vanda barna sem alast upp við mikla ofneyslu áfengis og vímuefna á heimilum og byggja upp úrræði fyrir þessi börn.
Að sögn Gunnars Smára má ætla að verst settu sjúklingarnar séu um 900 og að fólk sem leitar meðferðar en hefur ekki náð bata sé um 10 þúsund. Auka megi batalíkur þessa fólks til muna með sérsniðinni eftirfylgni og virkniúrræðum.
Þá er talið að um 5000 til 7000 börn búi við svo mikið álag á heimilum sínum vegna ofneyslu áfengis og vímuefna að heilsu þeirra stafi hætta af. „Þetta álag veldur ekki aðeins því að börnin verði útsettari fyrir að þróa með sér áfengis- og vímuefnasýki seinna meir heldur líka aðra geðræna sjúkdóma, líkamlega sjúkdóma og félaglegan vanda,” segir Gunnar Smári í tilkynningunni.
Þar er haft eftir honum að ekki sé stefnt að tilteknum fjölda undirskrifta, heldur sé markmiðið að vekja athygli þjóðarinnar.