Engin slys urðu á fólki þegar jepplingur valt út fyrir Reykjanesbrautina í Kúagerði um klukkan hálfníu í kvöld. Fimm voru í bílnum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru hálkublettir á Reykjanesbraut og talið að rekja megi slysið til þess.
Bifreiðin skemmdist töluvert og þurfti að flytja hana af vettvangi með kranabíl.