Jóni Ásgeiri dæmdar miskabætur

Svavar Halldórsson, Þóra Arnórsdóttir og María Sigrún Hilmarsdóttir í Héraðsdómi …
Svavar Halldórsson, Þóra Arnórsdóttir og María Sigrún Hilmarsdóttir í Héraðsdómi þegar málið var tekið fyrir þar. Sigurgeir

Hæstiréttur hefur dæmt Svavar Halldórsson, fréttamann RÚV, til að greiða afhafnamanninum Jóni Ásgeiri Jóhannessyni þrjú hundruð þúsund krónur í miskabætur vegna ummæla sem birtust í aðalfréttatíma RÚV. Þar með sneri Hæstiréttur við sýknudómi Héraðsdóms Reykjaness. Einnig er Svavari gert að greiða Jóni Ásgeiri eina milljón króna í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti.

Jón Ásgeir fór fram á að ummælin „Jón Ásgeir Jóhannesson“ og „þremenninganna“ yrðu dæmd dauð og ómerk, en þau komu fram í eftirfarandi texta sem Svavar las í fréttatímanum:

„Það hafa yfirvöld hér á landi líka gert, eins og við höfum áður greint frá, og þau telja sig komin á slóð peninganna enda hafa þau undir höndum gögn sem benda til þess að þeir Pálmi, Jón Ásgeir Jóhannesson og Hannes Smárason hafi skipulagt Panama-fléttuna fyrirfram. Það er að koma peningunum út til Panama en síðan hafi féð ratað aftur eftir krókaleiðum í vasa þremenninganna.“

Í dómi héraðsdóms sagði að Svavar hefði lýst því yfir að fréttin byggist á heimildum, munnlegum og skriflegum, sem hann meti trúverðugar. „Verður ekki lagt á stefnda að færa fram sönnun fyrir þessum ummælum en réttur fréttamanna til að standa vörð um og halda leynd yfir heimildum og heimildarmönnum hefur verið staðfestur í dómsúrlausnum. Þá þykir stefndi hafa sýnt nægilega fram á að hann hafi reynt að ná til stefnanda áður en fréttin var flutt og hefur hann því ekki brotið starfsreglur Ríkisútvarpsins að þessu leyti,“ sagði í dómi héraðsdóms.

Hæstiréttur taldi hins vegar að Svavar hefði engin gögn lagt fram um að ummælin ættu við rök að styðjast eða að hann hafi við vinnslu fréttarinnar leitað eftir upplýsingum frá Jóni Ásgeiri um efni hennar. Taldi Hæstiréttur því að Svavar gæti ekki hafa verið í góðri trú um sannleiksgildi þeirra ummæla sem í fréttinni fólust.

Var því fallist á kröfu Jóns Ásgeirs um að ummælin yrðu dæmd dauð og ómerk og að Svavar greiddi Jóni Ásgeiri miskabætur.

Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón Ásgeir Jóhannesson Kristinn Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert