Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð, haldinn 8. nóvember 2012, skorar á forsætisráðherra, umhverfis- og auðlindaráðherra og atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra að tryggja að unnt sé að stunda hefðbundinn landbúnað utan þynningarmarka iðjuveranna á Grundartanga vegna flúors og brennisteins.
Aðalfundurinn ályktar að í ljósi niðurstaðna mælinga á flúori í grasbítum í Hvalfirði verði að gera þá kröfu til Norðuráls á Grundartanga að gagngerar endurbætur verði gerðar á hreinsunarbúnaði verksmiðjunnar og verkferlum framleiðslunnar þannig að rekstur hennar geti farið saman við heilnæmt búfjárhald í Hvalfirði
Umhverfisvaktin vekur athygli Umhverfisstofnunar á því að endanlegur mælikvarði á mengun flúors er uppsöfnun í líffærum og beinum grasbíta. Aðrar mælingar gefa því einungis vísbendingar um flúormengun. Fundurinn beinir því til Umhverfisstofnunar að tekið verði inn í starfsleyfi Norðuráls viðmið um flúorinnihald í beinum, líffærum og kjöti grasbíta.
Þá beinir fundurinn þeim tilmælum til Bændasamtaka Íslands, Búnaðarsamtaka Vesturlands og búnaðarfélaga við Hvalfjörð, að þau láti sig málið varða ef öryggi afurða bænda og heilsu húsdýra við Hvalfjörð er ógnað vegna mengunar frá iðjuverunum á Grundartanga.
Þá fagnar framkominni þingsályktunartillögu frá þingmönnunum Atla Gíslasyni, Jóni Bjarnasyni og Lilju Mósesdóttur um að ríkisstjórninni verði falið að láta vinna óháð áhættumat og samfélagsmat vegna áforma um virkjanir í Þjórsá.