Strokufanginn er ofbeldismaður

Lögreglan á Selfossi leitar enn refsifanga sem strauk af fangelsinu á Litla-Hrauni fyrr í dag. Hann heitir Matthías Máni Erlingsson, fæddur 1988. Matthías er 171 cm á hæð, um 70 kg og grannvaxinn. Hann var íklæddur grárri hettupeysu, með svarta prjónahúfu á höfði og í dökkum buxum. Matthías var að afplána refsingu fyrir gróft ofbeldisbrot.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að vísbendingar séu um að Matthías Máni hafi fengið far á Selfoss um kl. 13:30 í dag. Það hefur hins vegar ekki fengist staðfest. Lögreglan óskar eftir öllum upplýsingum sem tengst geta stroki hans. Sími lögreglu er 480 1010.

Matthías Máni var í september dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir tilraun til manndráps. Hann réðist þá á fyrrverandi stjúpmóður sína og barði hana meðal annars með kertastjaka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert