Þrjár flóttafjölskyldur frá Afganistan

Það er kuldalegt um þessar mundir í Afganistan en þessi …
Það er kuldalegt um þessar mundir í Afganistan en þessi kona var að sækja neyðaraðstoð til SÞ. AFP

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Kristján Sturluson, formaður Rauða kross Íslands, undirrituðu í dag samning milli velferðarráðuneytisins og Rauða krossins  um móttöku og þjónustu við flóttafólk frá Afganistan.

Samningurinn felur í sér fjölþætta aðstoð við flóttafólkið, meðal annars við að útvega innbú og fatnað og umsjón með stuðningsfjölskyldum fyrir flóttafólkið á fyrsta dvalarári þess hér á landi. Utanríkisráðuneytið og velferðarráðuneytið fjármagna verkefnið. Fólkið er komið til landsins, alls þrjár fjölskyldur, og er búsett í Reykjavík. Börnin eru byrjuð í skólum og mæðurnar stunda nám í íslensku.

Þetta er í fyrsta sinn sem tekið er á móti hópi frá Afganistan hér á landi en frá því að flóttamannanefnd var stofnuð árið 1995 hefur verið tekið á móti 13 hópum frá fimm löndum. Flóttamannanefnd starfar í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) um móttöku á flóttafólki.

Koma flóttafólks frá árinu 1956

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert