Eiríkur maður ársins á Bylgjunni

Eiríkur Ingi Jóhannsson og Berta Gunnlaugsdóttir með börnin sín fjögur.
Eiríkur Ingi Jóhannsson og Berta Gunnlaugsdóttir með börnin sín fjögur. Morgunblaðið/RAX

Eiríkur Ingi Jóhannsson, sjómaður sem komst af eftir hryllilegan sjóskaða fyrr á árinu, er maður ársins á Bylgjunni árið 2012. Kosning fór fram bæði á Vísir.is sem og á Bylgjunni þar sem hlustendur hringdu og greiddu atkvæði sitt. Eiríkur Ingi fór með afgerandi sigur í kosningunni.

Alls voru tíu tilnefndir, samkvæmt frétt á Vísi.

Eiríkur Ingi Jóhannsson vann mikið þrekvirki þegar hann komst lífs af frá sjóslysinu í Noregi í lok janúar. Hann var í þrjá og hálfan klukkutíma í sjónum í miklum öldugangi. Hann var einn fjögurra sem voru um borð í Hallgrími SI-77 þegar skipið sökk á skömmum tíma. Eiríkur var sá eini sem komst lífs af, en þegar honum var bjargað hélt hann í tóma olíutunnu auk þess sem hann var í flotbúningi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert