Almannavarnir ánægðar með Facebook

Mikill snjór er á Vestfjörðum og í miklu að snúast …
Mikill snjór er á Vestfjörðum og í miklu að snúast hjá almannavörnum. mbl.is

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur staðið í ströngu yfir hátíðirnar. Óvissustigi vegna snjóflóðahættu var lýst yfir á Vestfjörðum norðan- og sunnanverðum auk Mið-Norðurlands 27. desember.  Hættustigi var lýst yfir sama dag á Ísafirði og síðar á Flateyri, Patreksfirði og Hnífsdal.  Í kjölfarið var ákveðið að setja 24 tíma vakt hjá Almannavarnadeild vegna slæmrar veðurspár. 

Sérsveit Ríkislögreglustjóra aðstoðaði við lokanir á vegum vegna ófærðar og auka mannskapur kallaður út hjá Fjarskiptamiðstöð. Verkefni almannavarnadeildar snúa að samhæfingu björgunaraðila á landsvísu ásamt samskiptum við veitu- og fjarskiptafyrirtæki þar sem rafmagnsleysi er víða. Upplýsingaveita deildarinnar hefur skipað stóran sess síðustu sólahringana þar sem tilkynningar um ástand eru settar inn á vefsíðu deildarinnar.  Auk þess uppfærir deildin Facebook-síðu sína reglulega og hefur það gefið góða raun, segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert