„Er það þess virði að reyna?“

Markmiðið er sem sé að fækka umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu um helming árið 2013 miðað við síðasta ár,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þar sem fólk er hvatt til þess að taka höndum saman og fækka umferðarslysum á nýju ári en tilkynningin í heild hljóðar svo:

„Samkvæmt tölum lögreglu árið 2012 varð að meðaltali eitt umferðarslys á dag á höfuðborgarsvæðinu þar sem meiðsl urðu á vegfarendum.  Í ljósi þess að slík óhöpp má í mörgum tilvikum rekja til hraðaksturs, of stutt bils milli ökutækja eða annarrar óaðgæslu í umferð, er spurning hvort hægt sé að fækka þessum slysum með samstilltu átaki.

Væri það til að mynda verðugt markmið að fækka slysum um helming, niður í eitt slys annan hvern dag á þessu ári? Að gera þá kröfu að hver ökumaður geri sitt svo aðrir megi komast heilir heim? Er það þess virði að reyna?

Lögreglan mun, með ofangreint markmið í huga, kynna vikulega upplýsingar um fjölda slysa og bera saman við markmiðið, fara yfir mögulegar ástæður þeirra og eftir atvikum hvort og þá hvaða ráðstafanir gætu dugað til að koma í veg fyrir samskonar slys.

Markmiðið er sem sé að fækka umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu um helming árið 2013 miðað við síðasta ár. Ert þú til?“

Tilkynning lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert