Vill takmarka bílaumferð um Heiðmörk

Svona var umferðin í Heiðmörk í desember þegar sala á …
Svona var umferðin í Heiðmörk í desember þegar sala á jólatrjám stóð sem hæst. Ljósmynd/Orkuveitan

Orkuveita Reykjavíkur hefur til skoðunar að leggja fyrir borgina formlega tillögu um að banna gegnumstreymisumferð um Heiðmörk. Mikil bílaumferð er oft um Heiðmörk og myndaðist t.d. hálfgert öngþveiti fyrir síðustu jól þegar Skógræktarfélag Reykjavíkur stóð fyrir sölu jólatrjáa.

Bílaumferð um Heiðmörk hefur aukist síðustu ár, en árdagsumferð um Heiðmerkurveg árið 2009 var um 370 bílar á dag. Samkvæmt umferðarspá er reiknað með að umferðin aukist um 2% á ári næstu árin.

Hólmfríður Sigurðardóttir, umhverfisstjóri Orkuveitunnar, sagði að Orkuveitan hefði áhyggjur af þessari miklu umferð og vildi draga úr henni vegna vatnsverndarsjónarmiða, en vatnsból höfuðborgarbúa eru í Heiðmörk. Hólmfríður sagði að vegurinn sem liggur milli Elliðavatns og Helluvatns lægi yfir sjálft brunnsvæðið við Gvendarbrunna. Brunnsvæðið væri að vísu afgirt, en hún sagði slæmt að hafa veginn á þessum stað. Ef engir vegir væru í Heiðmörk í dag og menn færu að velta fyrir sér staðsetningu þeirra yrði aldrei leyft að leggja veg á þessum stað.

Hólmfríður sagði að þó að umferð bíla um Heiðmörk yrði takmörkuð væri Orkuveitan ekki að leggjast gegn því að Heiðmörk yrði áfram nýtt sem útivistarsvæði. Það væri hægt njóta hennar gangandi, hjólandi o.s.frv. Ef bannað yrði að aka í gegnum Heimörk yrði að útbúa bílastæði þar sem fólk sem vildi ganga um svæðið gæti lagt bílum sínum.

Ástand vega í Heiðmörk er slæmt, en um er að ræða þrönga malarvegi. Settar hafa verið fram hugmyndir um að malbika vegi í Heiðmörk en líklegt er að það myndu stuðla að meiri bílaumferð um svæðið en nú er.

Munaðarlausir vegir í Heiðmörk

Ein hlið þessa máls er að það ber enginn ábyrgð á vegum í Heiðmörk. Árið 2005 afsalaði Vegagerðin sér forræði yfir vegum í Heiðmörk til Reykjavíkurborgar. Þá lagði Vegagerðin til að vegir í Heiðmörk yrðu malbikaðir en borgin samþykkti það ekki vegna vatnsverndarsjónarmiða. Árið 2010 skrifaði Vegagerðin borginni bréf þar sem segir að stofnunin muni hætta öllu viðhaldi á veginum. Borgin hefur aldrei samþykkt formlega að taka við veginum og því er í reynd enginn sem ber ábyrgð á vegum sem liggja innan Heiðmarkar. Þetta eru munaðarlausir vegir og því þarf kannski ekki að koma á óvart að ástand þeirra sé bágborið.

Einhverjar endurbætur voru gerðar á verstu köflum í veginum í haust eftir að Skógræktarfélag Reykjavíkur kvartaði undan ástandi vegarins. Reykjavíkurborg stóð að þessum viðgerðum þrátt fyrir að hún líti ekki svo á að það sé hennar hlutverk að sinna viðhaldi á veginum.

Orkuveitan telur rétt að stefna að því að loka fyrir …
Orkuveitan telur rétt að stefna að því að loka fyrir umferð bíla yfir brúna milli Elliðavatns og Helluvatns en hún er skammt frá brunnsvæðinu við Gvendarbrunna. mbl.is/Ómar Óskarsson
Vegir í Heiðmörk eru ekki góðir og hefur Skógræktarfélag Reykjavíkur …
Vegir í Heiðmörk eru ekki góðir og hefur Skógræktarfélag Reykjavíkur kvartað undan ástandi þeirra. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert