14 ára fangelsi fyrir að stinga Skúla

Litlu munaði að Skúli Eggert Sigurz léti lífið eftir að …
Litlu munaði að Skúli Eggert Sigurz léti lífið eftir að Guðgeir Guðmundsson stakk hann ítrekað með hnífi. Morgunblaðið/Sigurgeir S.

Hæstirétt­ur staðfesti í dag 14 ára fang­els­is­dóm yfir Guðgeiri Guðmunds­syni, en hann stakk Skúla Eggert Sig­urz, fram­kvæmda­stjóra lög­manns­stof­unn­ar Laga­stoða, hinn 5. mars á síðasta ári.

Skúli lá í marga daga milli heims og helju á gjör­gæslu­deild eft­ir árás­ina. Í ákær­unni seg­ir að Guðgeir hafi stungið hann ít­rekað í lík­amann, með þeim af­leiðing­um að hann hlaut fimm stungusár, þar af fjög­ur sem voru hvert um sig lífs­hættu­leg þótt aðrir áverk­ar hefðu ekki komið til.

Guðgeir var einnig ákærður fyr­ir sér­lega hættu­lega lík­ams­árás á Guðna Bergs­son, starfs­mann Laga­stoða, en hann stakk hann með hnífi tvisvar í lærið.

Íhugaði að vinna manni mein

Guðgeir sagði fyr­ir dómi að hann hefði íhugað það nokkr­um dög­um fyr­ir at­b­urðinn að vinna ein­hverj­um starfs­manni lög­fræðistof­unn­ar mein. Þá hefði hann ákveðið kvöldið áður að hafa hníf­inn með sér er hann færi þangað.

Guðgeir var með hníf með 13 cm löngu blaði á sér þegar hann fór til fund­ar við starfs­mann Laga­stoðar vegna skuld­ar sem var í inn­heimtu. Hann stakk Skúla ít­rekað.

Í dómi Hæsta­rétt­ar seg­ir að at­lag­an að Skúla hafi verið hrotta­leg og lífs­hættu­leg sem leiddi til var­an­legs heilsutjóns hans og  að hend­ing ein hafi ráðið að ekki hafi hlot­ist bani af. Hæstirétt­ur fellst á það mat héraðsdóms að Guðgeir hafi viljað að Skúli hlyti bana af at­lög­unni.

Tóm­as Guðbjarts­son skurðlækn­ir kom fyr­ir héraðdsdóm og lýsti þeim áverk­um sem Skúli fékk. Hann seg­ir að áverk­arn­ir sem Skúli fékk hafi verið djúp­ir, en ekki ýkja lang­ir. Miðað við hníf­inn, sem beitt var, væri ljóst að allt hnífs­blaðið hefði gengið inn í lík­ama Skúla. Rif­bein hafi kubbast í sund­ur beggja vegna. Væri þetta til marks um að hnífn­um hafi verið beitt af afli, en tals­vert átak þurfi til að rif fari í sund­ur. Tóm­as sagði að ekki hefði munað nema nokkr­um sentí­metr­um að hníf­ur­inn færi í hjartað.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert