Brotist var inn á heimili karlmanns á áttræðisaldri á Skagaströnd snemma í morgun og honum veittir alvarlegir áverkar á andliti og höfði. Hann liggur nú á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri tengist árásin kynferðisbrotamáli. Tveir ungir karlmenn eru í haldi vegna málsins.
Sá sem fyrir árásinni varð tilkynnti hana til lögreglu um hálfsexleytið í morgun.
Mennirnir sem handteknir voru eru báðir tæplega tvítugir. Annar þeirra tengist manninum fjölskylduböndum. Þeir brutust inn í húsið og veittust að honum með ofbeldi og barsmíðum. Þeir voru handteknir í morgun í heimahúsi á Skagaströnd og eru nú í haldi lögreglunnar á Akureyri, sem fer með rannsókn málsins.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er maðurinn ekki í lífshættu og ástand hans er talið stöðugt.