Björgunarmenn eru komnir til konunnar

Björgunarmenn í Esju hafa nú náð til göngukonunnar sem hrapaði og þeirra samferðamanna hennar sem biðu á slysstaðnum. Um þrjátíu manns sem voru einnig með þeim í för eru komin niður af fjallinu og nú á leið í fylgd björgunarsveitarmanna til byggða.

Á þessari stundu liggja ekki fyrir nákvæmar upplýsingar um ástand hinnar slösuðu.

Frétt mbl.is: Erfiðar björgunaraðstæður í Esju

Frétt mbl.is: Slasaðist í Esjunni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert