Eiríkur Örn Norðdahl hlaut í dag Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Illsku og Gunnar F. Guðmundsson sagnfræðingur fyrir bókina Pater Jón Sveinsson - Nonni.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin á Bessastöðum. Þetta er í tuttugasta og fjórða skiptið sem verðlaunin eru afhent en fyrst var tilnefnt til þeirra árið 1989.
„Þessi verðlaun hafa mikla þýðingu því þau staðfesta fyrir mér að ég var ekki að þessu til einkis. Það er þægileg tilfinning að finna að skrifin skipti fleiri máli en bara mig,“ segir Eiríkur Örn Norðdahl en ítarlega verður fjallað um verðlaunin í Morgunblaðinu á morgun.
„Ég lít á þetta sem umbun sem ég met mikils, eftir langt og að sumu leyti erfitt verk, og er um leið þakklátur þeim sem hafa stutt mig á þessu langa vinnuferli,“ segir Gunnar F. Guðmundsson sagnfræðingur.
Þriggja manna lokadómnefnd, skipuð þeim Viðari Eggertssyni leikhússtjóra, Hrefnu Haraldsdóttur bókmenntafræðingi og Stefaníu Óskarsdóttur stjórnmálafræðingi, sem var formaður, valdi verkin úr hópi tíu bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna 1. desember síðastliðinn, fimm í flokki fagurbókmennta og fimm í flokki fræðirita og bóka almenns efnis.
Íslensku bókmenntaverðlaunin nema einni milljón króna í hvorum flokki. Auk þess eru verðlaunahöfum afhent skrautrituð verðlaunaskjöl og verðlaunagripir, hannaðir af Jóni Snorra Sigurðssyni á gullsmíðaverkstæði Jens – opin bók á granítstöpli með nafni verðlaunahöfundar og bókar hans.
Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlauna í flokki fagurbókmennta:
Auður Ava Ólafsdóttir: Undantekningin
Eiríkur Örn Norðdahl: Illska
Gyrðir Elíasson: Suðurglugginn
Kristín Ómarsdóttir: Milla
Sigurjón Magnússon: Endimörk heimsins
Eftirfarandi bækur voru tilnefndar til verðlauna í flokki fræðirita og bóka almenns efnis:
Einar Már Jónsson: Örlagaborgin. Brotabrot úr afrekasögu frjálshyggjunnar. Fyrri hluti
Gunnar F. Guðmundsson: Pater Jón Sveinsson – Nonni
Gunnar Þór Bjarnason: Upp með fánann. Baráttan um uppkastið 1908 og sjálfstæðisbarátta Íslendinga
Jón Ólafsson: Appelsínur frá Abkasíu. Vera Hertzsch, Halldór Laxness og hreinsanirnar miklu
Steinunn Kristjánsdóttir: Sagan af klaustrinu á Skriðu
Þeir sem áður hafa hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin eru:
1989 Stefán Hörður Grímsson
1990 Fríða Á. Sigurðardóttir og Hörður Ágústsson
1991 Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson
1992 Þorsteinn frá Hamri og Vésteinn Ólason, Guðrún Nordal, Sverrir Tómasson
1993 Hannes Pétursson og Jón G. Friðjónsson
1994 Silja Aðalsteinsdóttir og Vigdís Grímsdóttir
1995 Steinunn Sigurðardóttir og Þór Whitehead
1996 Böðvar Guðmundsson og Þorsteinn Gylfason
1997 Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson
1998 Hörður Ágústsson og Thor Vilhjálmsson
1999 Andri Snær Magnason og Páll Valsson
2000 Gyrðir Elíasson og Guðmundur Páll Ólafsson
2001 Hallgrímur Helgason og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
2002 Ingibjörg Haraldsdóttir og Pétur M. Jónasson, Páll Hersteinsson,
2003 Ólafur Gunnarsson og Guðjón Friðriksson
2004 Auður Jónsdóttir og Halldór Guðmundsson
2005 Jón Kalman Stefánsson og Kristín G. Guðnadóttir, Gylfi Gíslason, Arthur C. Danto, Matthías Jóhannessen, Silja Aðalsteinsdóttir, Eiríkur Þorláksson
2006 Ólafur Jóhann Ólafsson og Andri Snær Magnason
2007 Sigurður Pálsson og Þorsteinn Þorsteinsson
2008 Einar Kárason og Þorvaldur Kristinsson
2009 Guðmundur Óskarsson og Helgi Björnsson
2010 Gerður Kristný og Helgi Hallgrímsson
2011 Guðrún Eva Mínervudóttir og Páll Björnsson