Tollvörður handtekinn vegna smyglmáls

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Tollvörður var í gær handtekinn vegna grunsemda um aðild að innflutningi á rúmlega 20 kg af fíkniefnum. Hann var leiddur fyrir dómara í morgun og úrskurðaður til þess að sæta gæsluvarðhaldi í tvær vikur.

Hinn 21. janúar sl. fann tollgæslan rúmlega 20 kg af fíkniefnum í tollpóstinum á Stórhöfða í Reykjavík. Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarnar vikur unnið að rannsókn málsins og átt náið samstarf við embætti tollstjórans í Reykjavík og lögreglustjórann í Kaupmannahöfn í Danmörku þaðan sem fíkniefnin voru send hingað til lands.

Fíkniefnin sem lagt var hald á reyndust vera rúmlega 20 kg af amfetamíni. Í þágu rannsóknar málsins hafa níu einstaklingar verið handteknir og yfirheyrðir og hafa átta þeirra sætt gæsluvarðhaldi. Fimm sæta enn gæsluvarðhaldi.

Í gær var tollvörður handtekinn vegna grunsemda um aðild að málinu. Hann var leiddur fyrir dómara í morgun og úrskurðaður til þess að sæta gæsluvarðhaldi í tvær vikur. Sex einstaklingar sæta því gæsluvarðhaldi nú í þágu rannsóknar málsins.

Í fréttatilkynningu frá lögreglu segir að rétt þyki að taka fram að grunsemdir beinast aðeins að þeim tollverði sem nú sætir gæsluvarðhaldi en ekki að neinum öðrum í starfsumhverfi hans svo sem hjá tolli eða póstinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka