Davíð Örn Bjarnason, sem látinn var laus úr fangelsi í Tyrklandi fyrir helgi eftir að hafa verið í varðhaldi í viku vegna gruns um fornmunasmygl dvelur enn í íbúð góðviljaðra Íslendinga í Antalya. Sambýliskona Davíðs segir hann láta nokkuð vel af sér miðað við aðstæður.
Þegar Davíð var látinn laus úr haldi á fimmtudaginn var honum gert það að skilyrði að dvelja í landinu uns mál hans verður tekið fyrir, en það verður væntanlega 25. apríl, þegar farbann hans rennur út.
Þóra Birgisdóttir, sambýliskona Davíðs sem búsett er í Svíþjóð, segist margoft hafa rætt við hann frá því hann var látinn laus. Honum líði talsvert betur nú, en fyrst eftir að hann var látinn laus.
Hún hefur enn ekki haft tök á að fara til hans, en hún er um þessar mundir að flytja aftur til Íslands ásamt börnum þeirra Davíðs.