Banaslys á Skeiðavegi

mbl.is

Karlmaður á fimmtugsaldri lést þegar jeppabifreið hans og dráttarvél skullu saman á Skeiðavegi til móts við Brautarholt í hádeginu í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi eru tildrög slyssins óljós og málið í rannsókn.

Maðurinn var einn í bifreið sinni þegar slysið varð. Ekki er unnt að greina frá nafni hans að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert