Sinueldur í Lundarreykjadal

Þykkan reykjarmökk leggur frá sinueldinum.
Þykkan reykjarmökk leggur frá sinueldinum. mbl.is/Pétur Davíðsson

Tilkynnt hefur verið um talsverðan sinueld í Lundarreykjadal og leggur þykkan reykjarmökk yfir svæðið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi eru lögreglumenn á leið á vettvang.

Þá hefur einnig verið óskað eftir aðstoð slökkviliðs og hefur slökkvibíll verið sendur á svæðið. Frekari upplýsingar um brunann liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Mikinn reyk leggur yfir svæðið.
Mikinn reyk leggur yfir svæðið. Ljósmynd/Hlynur
Sinubruninn í Lundarreykjadal.
Sinubruninn í Lundarreykjadal. mbl.is/ Pétur Davíðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert