Maðurinn sem lést í árekstri jeppabifreiðar og dráttarvélar á Skeiðavegi 25. mars sl. hét Ellert Þór Benediktsson til heimilis á Laufskálum 9 á Hellu.
Ellert var fæddur hinn 30. mars 1967. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvo syni, 17 og 20 ára. Ellert var dýralæknir á Dýralæknamiðstöðinni á Hellu.