Sinueldur við sumarbústaðahverfi

Eldur kviknaði í sinu við sumarbústaðahverfi skammt frá Galtalækjarskógi í dag og var eldurinn kominn mjög nálægt tveimur sumarbústöðum þegar tókst að slökkva hann samkvæmt heimildum mbl.is. Ekki liggur fyrir hver eldsupptök voru.

Eins og mbl.is greindi frá kviknaði sinueldur í Skorradal í gærkvöldi í landi Hvamms skammt frá sumarbústaðahverfi vegna notkunar á flugeldum. Þá munaði einnig litlu að eldurinn kæmist í einn af sumarbústöðunum á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert