Eigendur Samherja, Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson, segja augljóst af þeim gögnum sem Seðlabanki Íslands hefur lagt fyrir dómstóla vegna húsleitar á skrifstofum Samherja fyrir rúmu ári, að málið byggi á rangfærslum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í bréfi sem þeir hafa ritað til starfsmanna Samherja.
„Augljóst er af þeim gögnum sem Seðlabanki Íslands hefur lagt fyrir dómstóla að bankinn hefur byggt málið á rangfærslum og vanþekkingu á rekstri Samherja hf. Vonast er til að þeir sem skoða málið hjá embætti Sérstaks saksóknara sýni meiri fagmennsku en yfirmenn og rannsakendur Seðlabanka Íslands hafa gert,“ segir meðal annars í bréfinu.