Karl Vignir fyrir dómi

Karl Vignir Þorsteinsson við komuna í Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun.
Karl Vignir Þorsteinsson við komuna í Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun. mbl.is/Rósa Braga

Aðalmeðferð í máli Karls Vignis Þorsteinsonar, sem er grunaður um fjölmörg kynferðisbrot, hófst í Héraðsdómi Reykjavikur í morgun. Karl Vignir situr gæsluvarðhaldi til 1. maí nk. Um lokað þinghald er að ræða, samkvæmt upplýsingum frá héraðsdómi.

Samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksóknara tók Karl Vignir sér frest til að taka afstöðu til ákærunnar.

Samkvæmt heimildum mbl.is er  Karl Vignir ákærður fyrir brot gegn fjórum fullorðnum einstaklingum.

Karl Vignir hefur játað að hafa níðst á fjölda barna um áratugaskeið. Hann var handtekinn eftir umfjöllun Kastljóssins í janúar og í kjölfarið kom fram fjöldi nýrra kæra gegn honum, þar á meðal sumar vegna kynferðisbrota sem ekki eru fyrnd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert