Níu ára stúlka skorin á háls í Hafnarfirði

Níu ára gömul stúlka var skorin á háls í Hafnarfirði í dag, hún er ekki í lífshættu en er nokkuð slösuð. Árásarmaðurinn kastaði hnífnum í sjóinn eftir verknaðinn og leituðu kafarar hans í dag, án árangurs.

Samkvæmt heimildum mbl.is var árásarmaðurinn nýútskrifaður af geðdeild er hann réðst á stúlkuna. Þau munu ekki vera tengd fjölskylduböndum. Hann var handtekinn fljótlega eftir verknaðinn og komið fyrir á viðeigandi stofnun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert