Menningarhátíð Kópavogs, Kópavogsdagar, hófst í Sundlaug Kópavogs í morgun með söng Samkórs Kópavogs undir stjórn Skarphéðins Þórs Hjartarsonar. Hátíðin mun setja svip sinn á bæjarlífið næstu vikuna en þetta er í tíunda sinn sem hún er haldin.
Markmiðið er að gefa bæjarbúum og öðrum gestum færi á að njóta afraksturs þess mikla lista- og menningarstarfs sem fram fer í bænum allan ársins hring, segir í frétt frá Kópavogsbæ.
Dagskráin er fjölbreytt en að henni koma listamenn, kórar, félagsmiðstöðvar eldri borgara og fleiri og má af dagskrárliðum m.a. nefna handverkssýningar eldri borgara, barnatónleika í Salnum, gospeltónleika í Kópavogskirkju og fræðslugöngu um Hamraborgina.
Kvennakór Kópavogs syngur á myndlistarsýningu Myndlistarfélags Kópavogs, Hamraborg 1 til 3, kl. 17 í dag.
Kvöldskóli Kópavogs verður með vorsýningu í Snælandsskóla á morgun og 25 ára afmælissýning Myndlistarskóla Kópavogs verður opnuð í Gerðarsafni næstu helgi, svo fleiri dæmi séu nefnd.