Búið að handtaka tvo árásarmenn

Hrottafengin líkamsárás var gerð í miðri íbúðagötu í Seljahverfi í …
Hrottafengin líkamsárás var gerð í miðri íbúðagötu í Seljahverfi í dag og var vettvangurinn blóði drifinn.

Tveir karlmenn á fertugsaldri sem taldir eru hafa ráðist á annan mann í Seljahverfi í Breiðholti fyrr í dag voru í kvöld handteknir. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er fjöldi árásarmannanna nokkuð á reiki en þeir tveir sem handteknir voru eru taldir gerendur

„Það eru taldir vera tveir gerendur. Það er svolítið á reiki fjöldinn samkvæmt vitnum en aðrir virðast ekki hafa haft sig í frammi, án þess að ég þori að fullyrða það,“ segir Þorvaldur Sigmarsson, varðstjóri hjá lögreglunni í Kópavogi.

Óstaðfestar fréttir herma að allt að tíu manns hefðu tekið þátt í árásinni. Varðstjórinn útilokar ekki að árásarmennirnir kunni að vera fleiri.

Áður komið við sögu lögreglu

Þorvaldur segir að lögregla þekki mennina tvo sem handteknir voru en vill ekki tjá sig um hvort rétt sé að annar þeirra sé þekktur handrukkari. Sjónarvottur sagði mbl.is fyrr í kvöld að einn þeirra sem sást á vettvangi árásarinnar í dag sé þekktur handrukkari.

Ekki er vitað að svo stöddu hvert tilefni árásarinnar var.

Íbúi við Ystasel í Breiðholti þar sem árásin átti sér stað sagði í samtali við mbl.is í dag að aðkoman hafi verið skelfileg og íbúum í götunni sé mjög brugðið. Maðurinn sem fyrir árásinni varð var fluttur alblóðugur og illa lemstraður á sjúkrahús.

Frétt mbl.is: Blóðug handrukkun í Seljahverfi

Blóðslettur voru á götunni og á nærliggjandi bílum eftir að …
Blóðslettur voru á götunni og á nærliggjandi bílum eftir að þrír karlmenn gengu í skrokk á þeim fjórða í Breiðholtinu í dag.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert