Maðurinn sem fórst í vélhjólaslysi á Akranesi í gær hét Bergur Júlíusson. Hann var 51 árs og búsettur í Reykjavík.
Bergur var skipverji á togaranum Sturlaugi Böðvarssyni AK og var á heimleið eftir vinnu um borð í skipinu þegar slysið varð.
Bergur lætur eftir sig son og tvær dætur á aldrinum 19-26 ára, aldraða foreldra, systkini svo og sambýliskonu.