Íslenska stúlknalandsliðið í fimleikum hlaut í dag bronsverðlaun í sveitakeppni á Norðurlandamóti unglinga í áhaldafimleikum. Mótið fer fram í Elverum í Noregi. Í dag fór fram keppni í fjölþraut og sveitakeppni en á morgun fara fram úrslit á einstökum áhöldum.
Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir keppir til úrslita í stökki og í æfingum á gólfi. Þá mun Valgarð Reinharðsson einnig keppa til úrslita á svifrá og stökki. Ekki liggja fyrir útreikningar á öllum úrslitum pilta og því er enn möguleiki á að fleiri íslenskir piltar komist í úrslitin á morgun.
Piltasveitin lenti í því óhappi að einn keppandinn meiddist í upphitun og því gátu þeir ekki stillt upp sínu sterkasta liði og lentu því í 5.sæti.