Króatarnir farnir úr landi

Króatíski hópurinn á Keflavíkurflugvelli í hádeginu.
Króatíski hópurinn á Keflavíkurflugvelli í hádeginu. Hilmar Bragi Bárðarson

Flogið var með 27 króatíska flóttamenn sem Útlendingastofnun synjaði um hæli hér á landi til Zagreb nú í hádeginu. Þrjár fjölskyldur úr hópi Króata sem óskaði eftir hæli urðu þó eftir þar sem króatísk stjórnvöld vildu ekki taka við þeim þar sem annar makinn hafði ekki króatískt vegabréf.

Einhverjir í hópnum hafa áfrýjað niðurstöðu Útlendingastofnunar til innanríkisráðuneytisins og liggur niðurstaða í þeim ekki enn fyrir. Ráðuneytið úrskurðaði hins vegar að Króötunum væri ekki heimilt að vera hér á landi á meðan unnið væri í málum þeirra.

Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra sér um frávísun fólksins og fara fulltrúar hennar með hópnum út. Þá er læknir um borð í vélinni auk fulltrúa frá Mannréttindaskrifstofu Íslands.

Viðtal Morgunblaðsins við par frá Króatíu: Ekkert öryggi eftir langa leit

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert