Manni haldið nauðugum á heimili sínu

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Ráðist var inn á heimili eldri manns í Grafarvogi í dag og honum haldið þar nauðugum. Rannsókn málsins er á frumstigi en allt tiltækt lið lögreglu vann að lausn þess í dag. Frá þessu var sagt í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Í fréttinni kom fram að maðurinn býr í fjölbýlishúsi í Grafarvogi. Ruðst var inn á heimili hans skömmu eftir hádegi og honum haldið þar nauðugum. Samkvæmt frétt Stöðvar 2 er maðurinn ekki meiddur eftir atvikið.

 Haft er eftir nágranna mannsins að hann hafi bankað upp á eftir atburðinn, bundinn á höndum og fótum, og beðið um aðstoð.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert