Útlit fyrir frekari samdrátt á Hellisheiði

Vegna samdráttar í afkastagetu Hellisheiðarvirkjunar, sem þegar er orðinn og er fyrirsjáanlegur, hefur fyrirtækið kynnt hugmyndir um gufuöflun til virkjunarinnar frá nærliggjandi háhitasvæði í Hverahlíð. Ákvörðun liggur ekki fyrir, samkvæmt tilkynningu Orkuveitu Reykjavíkur til kauphallarinnar.

Framkvæmdin, verði í hana ráðist, rúmast innan Plansins, aðgerðaáætlunar Orkuveitunnar og eigenda.

Í frétt á vef Orkuveitu Reykjavíkur kemur fram að samdráttur er að verða í raforkuframleiðslu Hellisheiðarvirkjunar vegna niðurdráttar í jarðhitageyminum. Útlit er fyrir að hann aukist verði ekki að gert.

Að undanförnu hefur starfsfólk Orkuveitunnar skoðað ýmsar leiðir til að bregðast við vandanum. Vænlegast virðist að tengja háhitasvæðið í Hverahlíð við Hellisheiðarvirkjun.

Það myndi kalla á um fimm kílómetra langa gufulögn á milli svæðanna. Með því yrði komist hjá því að bora meira á núverandi vinnslusvæði virkjunarinnar en þess í stað nýttar öflugar holur, sem þegar hafa verið boraðar við Hverahlíð en hafa ekki aflað tekna í fimm ár.

Hellisheiðarvirkjun var fullbyggð haustið 2011 og hefur hún verið rekin á fullum afköstum síðan. Fylgst hefur verið náið með viðbrögðum jarðhitasvæðisins við vinnslunni, segir í frétt á vef OR frá því í gær.

Stendur ekki undir fullri framleiðslu

„Rannsóknir á jarðhitasvæðum í Henglinum, sem m.a. voru kynntar á alþjóðlegu jarðhitaráðstefnunni í Reykjavík í mars, leiða í ljós að núverandi vinnslusvæði Hellisheiðarvirkjunar stendur ekki undir fullri framleiðslu í virkjuninni til frambúðar. Þetta hefur þó ekki áhrif á heitavatnsframleiðslu í Hellisheiðarvirkjun. Jafnframt hafa erfiðleikar komið í ljós við niðurdælingu á vinnsluvatni í jarðhitageyminn en rennslistregða í niðurdælingarholum hefur aukist að undanförnu,“ segir á vef OR.

Tenging jarðhitasvæðisins í Hverahlíð við Hellisheiðarvirkjun virðist ódýrasta og öruggasta leiðin til þess að tryggja vinnslugetu virkjunarinnar til næstu ára, segir á vef OR.

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, segir á vef OR: „Það er nú ljóst að jarðhitasvæði Hellisheiðarvirkjunar stendur ekki undir fullum rekstri virkjunarinnar til frambúðar. Erfiðleikar hafa einnig komið í ljós við að skila vinnsluvökvanum aftur niður í jarðhitakerfið. Við þessar aðstæður höfum við einbeitt okkur að því að finna hagkvæmustu lausn á vandanum bæði í bráð og lengd. Hagkvæmasta lausnin til skemmri tíma virðist sú að leiða gufu frá jarðhitasvæðinu í Hverahlíð niður í Hellisheiðarvirkjun og tryggja þannig full afköst virkjunarinnar og tekjur til næstu ára. Það gefur okkur það tóm sem við þurfum til þess að vinna að öðrum lausnum og varanlegri bæði hvað gufuöflun og niðurdælingu á vinnsluvatni varðar. Á sama tíma vinnum við að lausn á brennisteinsvandanum svo það er í ýmis horn að líta á Hellisheiðinni þessi árin.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka