Sigrún Helga Evrópumeistari í opnum flokki

Sigrún Helga Lund og Pétur Jónasson
Sigrún Helga Lund og Pétur Jónasson Ljósmynd/Mjölnir

Þau Sigrún Helga Lund og Pétur Jónasson, bæði úr Mjölni, urðu í dag Evrópumeistarar í uppgjafarglímu í flokki keppenda með blátt belti á Opna evrópska meistaramótinu. Þau fylgdu þannig eftir góðu gengi sínu í gær á Opna Rómarmótinu í brasilísku jiu-jitsu þar sem þau unnu bæði einnig til gullverðlauna. Sigrún sigraði reyndar tvöfalt í dag því hún vann einnig opinn flokk kvenna með blátt belti en Pétur datt út í opnum flokki karla á minnsta mögulega stigamun.

„Þetta var Evrópumeistaramót í No-Gi,“ segir Sigrún Helga. „Í No-Gi þýðir að maður keppir án júdó-galla. Þetta er alveg frábær tilfinning.“ Sigrún Helga hafði áður unnið gullverðlaun í sínum þyngdarflokki, en hún keppir í flokki keppenda með blátt belti.

Pétur sigraði hins vegar alla andstæðinga sína í þyngdarflokkum með uppgjafartaki (submission). Fleiri íslenskir keppendur tóku þátt í dag en komust ekki á verðlaunapall. Best stóð Ómar Yamak sig en hann vann tvær glímur en féll úr keppni í átta manna úrslitum eftir naumt tap á stigum.

Það má því með sanni segja að Íslendingarnir hafi staðið sig vel um helgina en alls koma þeir heim með fimm gullverðlaun, eitt silfur og eitt brons eftir keppnir helgarinnar þar sem keppendur Mjölnis unnu tvenn gullverðlaun, silfur og brons á Opna Rómarmótinu í gær eins og þegar hefur komið fram. Þeir Gunnar Nelson, John Kavanagh og Þráinn Kolbeinsson fylgdu íslensku keppendunum á mótin en þeir eru allir þjálfarar í Mjölni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert