Jeppi valt í árekstri jeppa við fólksbíl við gatnamót Bústaðavegar og Háaleitisbrautar í morgun. Fjórir sjúkrabílar og tækjabíll slökkviliðsins voru kallaðir til, en ekki þurfti að klippa farþega jeppans úr bílnum.
Ekki er vitað um slys á fólki að svo stöddu.
Að sögn slökkviliðs lét ökumaður fólksbílsins ófriðlega og neitaði að koma út úr bíl sínum.